Friday, September 18, 2009

Rebels howling on full moon

Rebelution
ég ætlaði að koma með sögu þrjú, með öllum díteilunum um Rebel showið á Nasa en þar sem ég hef ekki tíma til þess að kafa svona djúpt ofan í þetta þá er þetta frábær saga hjá honum Cator Sparks.... Og má ég bæta við að þetta voru 14 hönnuðir, ca 30 módel og ca þrjár klukkustundir til stefnu og við rokkuðum þessa sýningu öll sem eitt :)

http://www.sundancechannel.com/fullfrontalfashion/blog/2009/09/iceland-fashion-week-diary-part-3/

allt saman miklir snillingar og þetta var alvöru sýning, þvílíkt góð samvinna! Við röðuðum okkur upp eftir hári og meiköppi þ.e. að það þyrfti bara að bæta lítið á og breyta eftir hvern hönnuð, þurftum að koma okkur saman um hvaða módel væru hjá hverjum og sumir þurftu að skipta algjörlega um módel frá því sem hafði verið áður ákveðið en allir hjálpuðust að og komumst að samkomulagi. Tónlistin var súper, ljósin líka, við höfðum baksviðs aðstöðu og meira að segja var ekki mikið mál að redda nokkrum fataslám og herðatrjám. Basic ;)

Meira að segja megnið af staffinu hennar Kollu komu og unnu með okkur og allir sem að þessari sýningu komu eiga hrós skilið!

klapp klapp og kissess Arndís Ey

2 comments:

Eyrún said...

Vá, ég var að lesa hérna fyrir neðan upplifun þína af tískusýningunni í Reykjavíkurhöfn. Ég kom einmitt á þessa sýningu og vorkenndi hönnuðum ekkert smá fyrir að þurfa að sýna svona langt í burtu frá áhorfendum. Er sammála þér í einu og öllu, ömurlegt að vera búin að sýna fötin áður en tískusýningin byrjaði fyrir alvöru. Ég tók einhvern bækling um sýninguna áður en ég gekk inn í bátinn og það stóð ekkert um þessa Bacardi-kjóla sýningu í honum, algjört klúður að hafa verið farin heim áður en það byrjaði :/ Fötin þín voru samt æðisleg og það bjargaði :)

arndisey said...

Takk fyrir það Eyrún.
Hefði verið gaman ef þú hefðir komist á sýninguna á Nasa, það var alvöru.
Flott blogg hjá þér stelpa, keep it up ;)